ÉG Á BRÚÐARKJÓL!!!

Fann kjólinn minn áðanGrin Alveg í skýjunum hérna. Var nú ekki búin að gera mér neitt of miklar vonir og ákveðin í að kaupa mér alls ekki kjól bara til að kaupa kjól. Varð að falla fyrir honum.........og ég steinláCool Lét setja hvítt plast yfir hann svo minn heittelskaði sæi hann nú ekki.........

Annars er yndislegt veður í Toronto og við búin að rölta aðeins um. Fórum upp í CN Tower, sem er tæplega 600 metra hár turn. Fórum reyndar bara upp í 350 metra hæð, höfðum ekki tíma fyrir meira, en það var alveg nóg get ég sagt ykkur heheLoL Ferlega gaman. Ég stóð við lyftudyrnar á uppleiðinni og þær eru úr gleri......það var nú eiginlega mest scary parturinn.........fyrir utan reyndar að þegar við vorum komin upp prófuðum við að standa á glergólfi sem er þar. Horfir svo bara á það sem er að gerast 350 metrum neðan við tærnar á þérUndecided Ég náði reyndar ekki að skoða mannlífið þarna niðri mikið þar sem ég stóð á glerinu í rétt um það bil 8 sekúndurBlush

En frábær dagur, mín í skýjunumInLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guð en spennó er mín að fara að ganga íþað til lukku með það vina mín en endilega ef þú ert á norður leið kikkaðu í bolla bestu kveðjur til ykkar frá okkur í holtinu

sigga (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 21:15

2 identicon

Til hamingju með kjólinn mín kæra.....hlakka ´gegt til að sjá hann! Takk fyrir skemmtilegar stundir á föstudaginn var......verðum að gera meira að þessu snúlla.....

 Love ya

Björkin

Björkin (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 22:32

3 identicon

ójá......hvað er planið 8. ágúst?????

Björkin (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 22:33

4 Smámynd: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Frábært að heyra með kjólinn :-)

Gat ekki annað en grenjað úr hlátri yfir þessari setningu hjá þér: "Fórum reyndar bara upp í 350 metra hæð, höfðum ekki tíma fyrir meira"... ekki TÍMA!!! Hahahaha Hugsaði með hlýjum minningum til ferðar okkar upp í hæsta minnisvarða í USA í St. Louis og taugaveiklunarhláturskastanna sem við fengum í "lyftunni".

Good times my friend... good times 

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 31.7.2008 kl. 15:18

5 Smámynd: Hulda Signý Gylfadóttir

Sigga: Takk fyrir það :) Já, giftumst 24.ágúst. Tengdapabbi hefði orðið 58 ára þann dag. Kíki í bolla næst þegar ég stoppa á Norðurlandinu.

Björk: Já, ó já. Svoo góður dagur. Er ekki stefnan tekin á Sálina 8.????? :)

Hrafnhildur: Hahahahaha taugaveiklunarhlátur hvað??? Lyfturnar í CN Tower voru reyndar pínku.....eða svolítið rosalega miklu stærri en eins rúmmetra gluggalausi klefinn sem við fórum upp í ;) Tvímælalaust good times :)

Hulda Signý Gylfadóttir, 31.7.2008 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband