Já, gott ef jólin eru ekki bara búin.....meira hvað kellan er dugleg að blogga.
Annars er farið að styttast verulega í næstu jól, strax kominn febrúar! Jólunum var annars eytt í faðmi fjölskyldunnar í Sólbrekkunni minni við heimskautsbauginn, ekkert að því Vorum heima í viku og eyddum svo áramótunum hérna heima með tengdamömmu. Voða ljúft og gott allt saman
Síðan byrjaði ég aftur að vinna í gær....5. janúar...og svo verður sennilega kominn mars á morgun...skil ekkert í tímanum að líða svona hratt!
Gerti minn sperrti er orðinn námsmaður ógurlegur og stundar sagnfræðinám í HÍ af miklum móð! Skiptumst á að læra hjónakornin
Annars er veðrið búið að vera svoooo dásamlegt undanfarið að það er aldrei að vita nema ég setjist bara varanlega að hérna á SV horninu, svei mér þá! Norðlenskt vetrarveður undanfarnar vikur, frost og stilla-elska svoleiðis veður Fór einmitt í göngutúr með Birnunni minni í dag...reyndar 8 stiga frost, en við erum djö... kraftakerlingar, enda báðar utanbæjarlufsur!
Jæja, Millisystan og co. á leiði í graut í Sölunum...aftur að eldavélinni!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.