Aldeilis ekki!

Get sagt ykkur það að ég tók fallegu hvítu úlpuna mína fram í gær og hún er enn gulröndótt!!!Devil Rendurnar höfðu bara orðið ljósari í þvottavélinni og mér fannst þær vera farnar! Arg, vill úlpuna mína aftur! Ekki að ég þurfi mikið á henni að halda núna þar sem við hjónakornin erum græn og guggin með myglusveppalúkk eftir 3 daga veikindi!

Ætla rétt að vona við verðum orðin hress að miðvikudag svo við komumst norður. Er að hugsa um að lítal hið íðilfagra norðurland augum í vetrarfríinuSmile Knúsa Nunna litla vel í leiðinniInLove

Jæja, best að einbeita sé að því að vera lasin, annars gæti ég gleymt því hahaGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Þorleifsson

er þetta ekki alveg málið fyrir kvenfólk - þið verðið vitlausar ef þið sjáið aðra konu í eins flík, það á sennilega engin önnur úlpuna þína hahaha

Sverrir Þorleifsson, 27.10.2008 kl. 22:38

2 identicon

Hahahaha, snilldarpunktur hjá þér Sverrir Heilmikið til í þessu! Kannski ég ætti bara að vera himinsæl með röndótta úlpugerpið

Hulda Signý (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 22:42

3 identicon

Hæhæ mín kæra,

ég pant fá eitt stykki heimsókn ef þú verður nálægt Dalvíkinni!!!

Það væri nú voða gaman að hittast, endilega hafðu samband ef þú átt smá tíma aflögu:-)

Bestu kveðjur frá snjóavíkinni

Berglind (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband