Snjókorn falla, á allt og alla

Mein Gott, barasta allt í snjó!!! Við Eggert fórum á Bubba tónleika í Kassagerðinni í gærkveldi og trúðum ekki okkar eigin augum þegar við komum út....allt komið á kaf!!Crying Eins gott að skafan er bara geymd í skottinuJoyful Eggert fannst frekar fyndin tilhugsun að þremur tímum áður var hann á golfvellinum á fullu að spila í sól og kulda, en hvergi snjókorn.

Ég er loksins búin að fá myndir úr brúðkaupinu og setja hérna inn. Veit reyndar ekkert hvernig þetta snýr allt saman, var í því að snúa myndunum en þær duttu jafn harðan á hliðina!FootinMouth Fékk þessar hjá Konna bróður, en hann kom með okkur og Palla ljósmyndara í Grasagarðinn svo mér finnst þær voða fínarInLove Brúðkaupsdagurinn var í alla staði frábær. Ég var náttúrulega búin að hlakka þvílíkt til, en grunaði samt ekki hvað þetta er óheyrilega skemmtilegt. Maður er sannarlega þakklátur fyrir allt dásamlega fólkið sem að manni stendur. Athöfnin var alveg frábær hjá sr. Erni Bárði, Steingrímur spilaði svooo vel og Gulli söng barasta betur en nokkur engill, ótrúleg röddin í drengnumHalo Veislan var alger snilld, mikið hlegið og grátiðHeart Svo stungum við Eggert minn okkur á brúðarsvítuna á hótel Sögu....ekkert að þvíInLove Hittum svo fólkið okkar aftur í hádeginu daginn eftir þegar við opnuðum gjafirnar.

Mín er náttúrulega farin að kenna. Ég og Katan mín erum með sinn hvorn fimmta bekkinn í Vatnsendaskóla og skemmtum okkur bara velSmile Bekkirnir okkar frábærir og snilld að vinna svona saman. Svo er Björkin mín náttúrulega deildarstjóri þarna og Ella Magga vinkona að kenna svo manni leiðist ekki.

Ma og pa eru hjá okkur á Sjávarútvegssýningunni og bara noddó að hafa settið hjá sérHappy Svo eru Svafar og Unnur fyrir sunnan með yngstu snuddurnar og þær ætla að vera hjá frænku og frænda um helgina meðan mamman og pabbinn snúlla sér á hóteli. Hlakka svo til að snúlla með þærInLove Gyðan mín var hjá okkur um síðustu helgi og mikið var notalegt að hafa hana. Við fluttum okkur líka í Háulindina um miðjan mánuðinn og pössuðum börn og buru meðan Rebekka sys var úti hjá Sigga. Þvílík dásemdarbörn þar á bæSmile

Annars gengur uppeldið á Litla Strumpi bara vel. Mér hálf hryllir við að halda á greyinu svo ég bætti henni það upp með því að kaupa handa henni tveggja hæða hús með leikröriLoL Annars mata ég hana í gegnum rimlana og sinni ábyrgðarhlutverkinu rosa vel hahahaLoL

Jæja, það munaði ekkert um það þegar kellan loks bloggaði.

Over and out,

Frú Hulda Signý


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ og innilega til hamingju með tiltilinn frú Hulda Signý.  Ég var bara að sjá það núna.  Rosa flottur kjóllinn þinn og æðislegar myndir af ykkur.  Ég búin að setja síðuna þína í favorites svo nú kíkka ég reglulega héðan í frá.  Ekki ætla ég að missa af stórtíðindum aftur, sjá þá 2 mánuðum seinna.

kv. Eyrún

Eyrún Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 11:01

2 identicon

Nohhhh bara blogg!!!! Já, rúsína... brúðkaupið þitt var algjör draumur og frábært að sjá hvað þið eruð made for each other!!! Ég er nátttlega heppnasti deildarstjóri á landinu að fá þig og kötuna að vinna hjá okkur......þið eruð æði! Þú lætur mig svo vita þegar ÞÚ hefur tíma til að fara aftur í kósí dinner skvísa....ég er alltaf laus en það er annað með þig....þú ert svo vinsæl sæta.......

luv ya!

Björkin (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 20:52

3 identicon

Innilegar hamingjuóskir kæra frú. Fallegar myndir af ykkur hjónunum :)

Marta (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 22:22

4 identicon

Takk snúllur :)

Þetta var hreint ótrúlega yndislegur dagur.

Björkin mín ég er alltaf til :)

Hulda Signý (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 20:46

5 Smámynd: Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir

Jeminn einasti! Ég hélt að ég væri búin að kommenta um myndirnar!! Skyldi ekkert í því af hverju þú varst að benda mér á að þær væru komnar inn.. ég væri löngu búin að tjá mig....  "Brjóstamóðan" alveg að gera útaf við mig hérna... svo veistu líka að brjóstamjólkin lekur út í blóðið og gerir mann skrítinn.. já eða skrítnari en venjulega

En í stuttu máli: Hárið á þér var æði, förðunin glæsileg, kjólinn geggjaður... þú varst algjörlega stórglæsileg! Ég hefði örugglega grenjað við það eitt að sjá þig! (Spurðu bara Eyrúnu ) Ég var ekki lítið glöð við að sjá að Eggert svona hrikalega flottan... og með skeggið góða! "It´s a keeper" ;-)

Vonandi hittum við í mark með "ekki" brúðargjöfinni

Stórt knús frá mér og strákunum!

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, 17.10.2008 kl. 02:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband